top of page
Search
Writer's pictureAdmin

Gera mynd um stafrænt kynferðisofbeldi

Updated: Jan 5, 2018


„Við erum svo gríðarlega ánægð með að fá að halda áfram þessari góðu vegferð. Við erum líka með svo gott fólk með okkur í liði,“ segir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, ein af höfundum fræðslumyndanna Fáðu já og Stattu með þér! Á sunnudaginn 19. júní veitti Jafnréttissjóður Íslands Elinóru, áhugafélagi um kvikmyndir og fræðslu, fjögurra milljóna króna styrk til þess að búa til þriðju fræðslumynd sína. „Við erum gríðarlega stoltar af styrknum um leið og við stöndum auðmjúkar gagnvart verkefninu og alvarleika málsins.“

Jafn­rétt­is­sjóður út­hlutaði tæp­lega hundrað millj­ón­um króna í styrki í ár til 42 um­sækj­enda. Styrkurinn var veittur við hátíðlega at­höfn í Iðnó á sunnudaginn. Styrkirnir eru veittir til verkefna og rannsókna sem miða að því að efla jafnrétti kynjanna. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhenti styrkina en sjóðurinn nýtur framlaga af fjárlögum í fimm ár, hundrað milljónir króna á ári, til ársloka 2020.

Þriðja stuttmynd hópsins, Myndin af mér, verður um kynferðisofbeldi sem þrífst í netheiminum. Hún mun hafa það að markmiði að koma mikilvægri fræðslu til barna á jákvæðan og skemmtilegan hátt. Myndin mun fræða áhorfendur um hugtök á borð við sexting, hrelliklám og stafræn borgararéttindi. „Þessi mynd mun tækla hrelli­klám sem er vaxandi ógn. Þetta er næsta kynslóð af kynferðisofbeldi og það er full þörf á því að gera þessu góð skil. Það þarf að standa vaktina,“ segir Þórdís Elva og bætir við að þau sem komi að myndunum séu mjög stolt af góðum árangri.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 27. júní




22 views0 comments

Comments


bottom of page