top of page

Ef ég er eldri en 15 ára

(Eftirfarandi upplýsingar eru ætlaðar börnum á aldrinum 15-18 sem vilja vita hvað gerist ef lögreglunni er tilkynnt um stafrænt kynferðisofbeldi sem þau hafa verið beitt.)

 

Ef þú ert 15 ára eða eldri þegar þú verður fyrir stafrænu kynferðisofbeldi er líklegt að skýrslutakan (þar sem þú lýsir því sem kom fyrir þig) fari fram á lögreglustöð. Eftir það átt þú rétt á hjálp í Barnahúsi við að vinna úr tilfinningum þínum vegna brotsins, eins lengi og þörf krefur (eða þangað til þér er farið að líða betur). Ef þú býrð á höfuðborgarsvæðinu er þér boðið að koma í Barnahús til að fá þessa hjálp, en ef þú býrð utan höfuðborgarsvæðisins kemur sérfræðingur frá Barnahúss til þín.

 

Ef sá sem framdi brotið gegn þér var eldri en 15 ára þegar hann beitti ofbeldinu sér lögreglan yfirleitt um að rannsaka málið, en ef gerandinn er yngri en 15 ára sjá barnaverndaryfirvöld eingöngu um málið. Þegar lögreglan er búin með rannsókn sína (ef gerandinn var eldri en 15 ára) fær Ríkissaksóknari málið þitt í hendur.

 

Ríkissaksóknari skoðar öll gögn í málinu og tekur ákvörðun um hvort gefin sé út ákæra eða ekki. Ef gefin er út ákæra fer málið fyrir dómstól, þar sem dómarar ákveða hvort sá sem beitti ofbeldinu er fundinn sekur eða ekki. Þú þarft að mæta í dómssalinn og segja söguna þína aftur, fyrir framan dómarann. Þér til halds og trausts verður sama manneskjan og hefur veitt þér aðstoð í Barnahúsi, og/eða manneskja sem hefur það hlutverk að styðja við bakið á þér og gæta réttar þíns, sem kallast réttargæslumaður. Markmiðið er að þú fáir aðstoðina sem þú átt skilið á öllum stigum ferlisins.

​

(Ef þú ert eldri en 18 ára og tilkynnir um stafrænt kynferðisofbeldisbrot til lögreglunnar fer samskonar ferli fram, nema að þjónusta Barnahúss stendur þér ekki til boða. Þú getur þó fengið ókeypis viðtöl í Stígamótum (fyrir öll kyn), Kvennaathvarfinu (fyrir konur og stúlkur) ef þú býrð í Reykjavík. Á Akureyri geturðu leitað til Aflsins og hvar sem þú ert búsett/ur geturðu ávallt hringt í hjálparsíma Rauða krossins (1717) eða smellt hér til að eiga í netspjalli.)

​

​

bottom of page