top of page
Hvað er stafrænt kynferðisofbeldi
og áreitni?
Til stafræns kynferðisofbeldis og áreitni telst til dæmis að
- sýna eða dreifa nektarmyndum af öðrum í leyfisleysi,
- að senda óumbeðnar nektarmyndir og kynferðisleg skilaboð til annarra,
- að þrýsta á aðra eða hóta þeim í þeim tilgangi að þvinga þá til þess að senda nektarmyndir,
- að hóta öðrum að dreifa nektarmyndum af þeim,
- að búa til falskar nektarmyndir af öðrum og dreifa þeim eða hóta því,
- að nota nektarmyndir sem vopn til að hrella, hóta eða kúga fé af öðrum, o.s.frv.
Listinn er ekki tæmandi, enda tekur tæknin sífelldum breytingum og þar af leiðandi er stafrænt kynferðisofbeldi í örri þróun líka. Hér eru góðar upplýsingaveitur.
Hvað ef ég verð fyrir stafrænu kynferðisofbeldi ?
bottom of page